

Mannauðssjóður KJALAR stéttarfélags tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.2. um starfsmenntunarsjóð í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.
Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni. Ársreikninga og skýrslu um starfsemi sjóðsins er að finna hér. |