Merki Kjalar stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Logo fræðsluseturs starfsmenntar
Starfsmat
Nýtt efni Eldra efni
31.8.2010
Námsvísar símenntunarmiðstöðva

Starfsfólk símenntunarmiðstöðva er nú í óða önn að leggja lokahönd á námsvísa fyrir haustönn 2010, en þeir mun koma út fyrstu vikuna í september. Í námsvísinum verða kynnt þau námskeið og þær námsleiðir sem í boði verða í vetur og að venju verður mikið úrval námskeiða,  þannig að sem flestir ættu að geta fundið nám og námskeið við sitt hæfi. 





 


26.8.2010
Skýrsla stjórnar Mannauðssjóðs KJALAR

Mannauðssjóður KJALAR stéttarfélags tók formlega til starfa 1. janúar 2007 og byggir á gr. 13.4.2. um starfsmenntunarsjóð í kjarasamningi Launanefndar sveitarfélaga (LN) og KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu.

Markmið sjóðsins er annars vegar að auka möguleika sveitarfélaga og stofnana þeirra á að þróa starfssvið sitt þannig að það samræmist þeim kröfum sem gerðar eru til þeirra á hverjum tíma og efla starfsmenntun starfsmanna með það fyrir augum að þeir verði færari til að takast á við sífellt fjölbreyttari verkefni.
Ársreikninga og skýrslu um starfsemi sjóðsins er að finna hér.


24.8.2010
Breyting á úthlutnarreglum Fræðslusjóðs

Á hverjum tveimur árum er hámarksstyrkur kr. 120.000 en þeir sem hafa verið félagsmenn í tíu ár eða lengur geta fengið allt að: kr. 140.000.  Einnig er breyting á styrk vegna lífsleikninámskeiða án beinnar tengingar við starf, 50% af gjaldi, hámark árlega kr. 20.000
Breyting þessi tekur gildi frá og með 1. september nk. og gildir þá um námskeið sem hefjast á haustönn 2010.


23.8.2010
Haustönnin að fara á fulla ferð

Fræðslusetrið Starfsmennt er með löng og styttri námskeið sem eru öllum félagsmönnum að kostnaðurlausu. Hér er að finna fréttablað frá Starfsmennt. Skráning stendur nú yfir á www.smennt.is

22.7.2010
Laust í orlofshúsum

  Yfirlit yfir laus orlofshús og íbúðir er að finna á bókunarvef orlofssjóðs. Þá viljum við vekja athygli á orlofsmöguleikum s.s. HótelEddu og Fosshótels afsláttaávísanir og fleira.

Allt nánar og til sjálfsafgreiðslu hér á vefnum. "Fyrstur kemur fyrstur fær."
Laust á Akureyri og Varmahlíð frá 30. júlí og fl.


8.7.2010
Sumarlokun skrifstofu KJALAR stéttarfélags.

Skrifstofa KJALAR stéttarfélags verður lokuð frá og með 19. júlí . –  opnar aftur 9. ágúst nk.


5.7.2010
Launahækkanir þann 1. júní sl.

Margir félagsmenn hafa orðið varir við að laun hækkuðu þann 1. júní sl. Um var að ræða hækkun í samræmi við stöðuleikasáttmála og kjarasamninga félagsins og gilda þeir flestir til 30. nóvember nk. Hækkunin er mismikil eftir því hvar í launastiganum hver er.

Þá hækkuðu laun starfsmanna Norðurorku hf. um 2,5%


30.6.2010
KJÖLUR fór á Kjöl

Farin var ferðin "KJÖLUR fer á Kjöl" sl. laugardag og skemmtu ferðamenn sér mjög vel. Komið var að Hveravöllum um kl. 13:30 þar beið okkur súpa og smurt brauð. Eftir dvöl þar var haldið heim á leið og komið við í upplýsingamiðstöð Blönduvirkjunar.


28.6.2010
Ársfundur LSA haldinn í dag

Ársfundur sjóðsins var haldinn í húsakynnum Stapa að Strandgötu 3, mánudaginn 28. júní.
Afkoma Lífeyrissjóðs starfsmanna Akureyrarbæjar (LSA) var góð á árinu 2009 og var hrein raunávöxtun sjóðsins 3,13% samanborið við 0,56% neikvæða raunávöxtun sjóðsins á árinu 2008. Að sögn Kára Arnórs Kárasonar framkvæmdastjóra Stapa lífeyrissjóðs, en Stapi er sér um rekstur sjóðsins, þá var það fyrst og fremst varfærin stefna sjóðsins sem skilaði þessari niðurstöðu.


24.6.2010
Laus orlofshús

Hólar í Hjaltadal                  er laus frá   2. júlí til   9. júlí kr. 18:000
Sólheimar 25 10 hæð         er laus frá  30. júní til 7. júlí kr. 18.000

Íbúðin á Spáni Torrevieja/Orihuela Co 25. júní til 12. júli kr. 28.000 vikan.
Hótel EDDA - gistimiði f. 2 kr. 4:500

Fyrstur kemur fyrstur fær hér á bókunarsíðu orlofssjóðs.


22.7.2010
Laust í orlofshúsum

  Yfirlit yfir laus orlofshús og íbúðir er að finna á bókunarvef orlofssjóðs. Þá viljum við vekja athygli á orlofsmöguleikum s.s. HótelEddu og Fosshótels afsláttaávísanir og fleira.

Allt nánar og til sjálfsafgreiðslu hér á vefnum. "Fyrstur kemur fyrstur fær."
Laust á Akureyri og Varmahlíð frá 30. júlí og fl.

lesa meira >>
 

KJÖLFESTA 1. tbl. 2010
KJÖLFESTA 3. tbl. 2009
KJÖLFESTA 2. tbl. 2009

Þú getur gerst áskrifandi að fréttum og uppfærslum á síðum. Smelltu hér til að gerast áskrifandi
 

  Hvalfjarðargöng


Seldir eru stakir miðar í Hvalfjarðargöng á kr. 580 stk. á skrifstofu KJALAR, einnig sendum við miða í pósti. Jafnframt er hægt að kaupa 10 miða í bunkti kr. 5800 í afgreiðslu í Hvalfjarðargöngunum.

KJÖLUR Stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu - Ráðhústorgi 3 - Akureyri - Sími: 525 8383 - Fax: 525 8393 - Netfang: kjolur hjá kjolur.is