- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Félagsmenn á landsbyggðinni sæki um hjá Bjargi
Teknar hafa verið fyrstu skóflustungur að íbúðakjörnum Bjargs íbúðafélags á tveimur lóðum í Reykjavík. Félagsmenn í aðildarfélögum BSRB og ASÍ hafa tekið vel við sér og fjölmargar umsóknir hafa borist Bjargi íbúðafélagi. Rétt er að minna sérstaklega þá sem búa á landsbyggðinni á möguleikann á að sækja um. Akureyrarbær hefur nú þegar gefið vilyrði um úthlutun á lóð að Guðmannshaga 2 í nýjasta hverfi bæjarins,
Bjarg íbúðafélags, sem stofnað var af ASÍ og BSRB, hefur það að markmiði að byggja upp og leigja tekjulágum félögum þessara tveggja heildarsamtaka íbúðir. Félagið er ekki rekið í hagnaðarskyni. Skráning á biðlista stendur nú yfir. Öllum umsóknum sem berast fyrir lok júlí verður safnað saman og verður dregið úr umsóknunum um sæti á biðlistanum í byrjun ágúst. Þeir sem sækja um eftir lok júlí fara svo á biðlistann í þeirri röð sem umsóknir berast.
Eins og fram hefur komið hefur Bjarg íbúðafélag nú hafið framkvæmdir á tveimur lóðum í Reykjavík, en uppbygging er fyrirhuguð víðar. Nú þegar hefur félagið undirritað viljayfirlýsingar um uppbyggingu á Akureyri, Akranesi, Selfossi, Þorlákshöfn og í Sandgerði. Íbúar í þessum sveitarfélögum sem hafa áhuga á að sækja um íbúð eru hvattir til að sækja um sem fyrst svo þeir verði framarlega í röðinni þegar íbúðir verða teknar í notkun í þeirra bæjarfélögum. Samkvæmt samantekt frá Bjargi, sem kynnt var á fundi stjórnar BSRB síðastliðinn föstudag, hafa á fimmta hundrað umsóknir þegar borist félaginu.
Mikill meirihluti umsókna, nærri níu af hverjum tíu, eru frá fólki sem nú býr á höfuðborgarsvæðinu. Þeir félagsmenn aðildarfélaga BSRB sem hafa hug á að sækja um íbúð hjá Bjargi eru hvattir til að nota sér reiknivél á vef Bjargs og að skila inn umsókn fyrir lok júlí til að eiga sem mestan möguleika á að fá úthlutað íbúð sem fyrst. Prófaðu reiknivélina og sendu inn umsókn á vef Bjargs íbúðafélags.
Sjá nánar á vef BSRB
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.