- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Orlofshúsabyggðin á Illugastöðum í Fnjóskadal er fyrir löngu vel kunn flestum landsmönnum, svo margir hafa dvalið þar eða litið við hjá vinum og kunningjum sem þar hafa dvalið. Illugastaðir eru sívinsæll sumardvalarstaður.
Á Illugastöðum er meðal annars sundlaug og heitur pottur. Lítil verslun er í þjónustumiðstöðinni.
Þjónustumiðstöðin er opin ; mánudaga til miðvikudaga kl.16:00 til 17:00, fimmtudögum kl.16:00 til 18:00, föstudögum kl.16:00 til 21:00.
Leikvöllur er á svæðinu með skemmtilegum leiktækjum fyrir börnin, m.a. ærslabelg. Stutt er yfir í Vaglaskóg þar sem miklir möguleikar eru til gönguferða.
Eingöngu sumarleigutímabil árið 2024