- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Trúnaðarmannaráð Kjalar stéttarfélags styður baráttu kennara innan KÍ í kjaradeilu þeirra við Samband íslenskra sveitarfélaga annars vegar og ríkisins hins vegar.
Trúnaðarmannaráð lýsir yfir stuðningi við kennara í baráttu þeirra fyrir betri kjörum. Kennarastéttin er að stórum hluta kvennastétt sem býr við kerfisbundið vanmat á störfum þeirra sem birtist í lægri launum þeirra sem þar starfa samanborið við aðrar stéttir á vinnumarkaði í störfum sem teljast jafnverðmæt.
Vanmat á kvennastéttum er talin ein meginástæða launamunar kynjanna og birtist í kynjaslagsíðu á þeim atriðum sem hafa áhrif á launasetningu starfa, svo sem ábyrgð, álagi og starfsumhverfi. Við höfum byggt velferðarkerfið okkar á þessum vanmetnu störfum en opinberir atvinnurekendur hafa veitt sjálfum sér afslátt við launasetningu ómissandi kvennastétta. Þessu þarf að breyta og styður trúnaðarmannaráð Kjalar heilshugar leiðréttingu launa kennara og þar með viðurkenningu á verðmæti þeirra fyrir samfélagið allt
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.