- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Þann 31. mars síðastliðinn skrifaði Kjölur stéttarfélag undir samkomulag við fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs um framlengingu og breytingar á kjarasamningi milli aðila.
Um skammtímasamning er að ræða sem er með gildistíma frá 1. apríl 2023 til 31. mars 2024 þar sem aðal áherslan er lögð á launahækkanir og kjarabætur s.s. orlofsuppbót, desemberuppbót, vaktaálag á stórhátíðardögum og fl. Einnig fylgir samningunum verkáætlun um þætti eins og vinnutíma í dagvinnu og vaktavinnu, fræðslumál, slysatryggingar o.fl. Að auki fylgir samkomulaginu viðauki, þar sem fjallað er um ákveðnar breytingar á vaktaálagi og vaktahvata.
Það var lögð á það mikil áhersla að tryggja kaupmátt félagsfólks og að samningur tæki við af samningi launahækkanir sem koma til útborgunar þann 1. maí næstkomandi.
Atkvæðagreiðsla um samninginn mun standa yfir frá kl. 15:00 mánudaginn 3. apríl til kl. 09 föstudaginn 14. apríl. Um er að ræða rafræna kosningu sem fer fram á kjosning.is - Kosningu lýkur föstudaginn 14. apríl kl. 09:00.
Sjá má samninginn í heild sinni á hjá atkvæðaseðlinum og á mínum síðum
Við hvetjum við félagsfólk til að kynna sér kjarasamninginn sem og taka þátt í atkvæðagreiðslu. Félagsfólk getur nálgast kjarasamninginn á þar sem kosning fer fram.
Haldnir verða rafrænir kynningarfundir sem hér segir:
Miðvikudagur 5. apríl
Þriðjudagur 11. apríl
Fimmtudagur 13. apríl
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.