- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Konur eru hvattar til að leggja niður vinnu kl. 14:38 mánudaginn 24. október og fylkja liði á samstöðufundi einn er á Ráðhústorgi á Akureyri kl. 15.00, annar á Austurvelli, kl. 15:15 undir kjörorðinu KJARAJAFNRÉTTI STRAX!
Að átakinu standa samtök launafólks og samtök kvenna. Meðal atvinnutekjur kvenna eru 70,3% af meðal atvinnutekjum karla. Konur eru því með 29,7% lægri meðaltal atvinnutekna. Samkvæmt því eru konur búnar að vinna fyrir sínum launum eftir 5 klukkustundir og 38 mínútur miðað við fullan vinnudag frá kl. 9–17. Daglegum vinnuskyldum kvenna er því lokið kl. 14:38. Þann 24. október árið 1975 lögðu konur um allt land niður vinnu til að sýna fram á mikilvægi vinnuframlags kvenna fyrir þjóðfélagið.
Árið 2005 héldum við upp á kvennafrídaginn í annað sinn og konur gengu í tugþúsunda talið útaf vinnustað á þeirri mínútu þegar þær hættu að fá borgað fyrir störf sín miðað við karla. Þá gengu konur út klukkan 14:08.
Árið 2010 gengu konur út klukkan 14:25. Nú göngum við út klukkan 14:38. Við höfum grætt hálftíma á ellefu árum. Tæplega þrjár mínútur á hverju ári. Með þessu áframhaldi þurfum við að bíða í 52 ár eftir að hafa sömu laun og sömu kjör og karlar, til ársins 2068!
Það er óásættanlegt!
Fylgstu með á kvennafri.is og facebook.com/kvennafri.
Taktu þátt í samræðunum á Twitter undir myllumerkinu #kvennafrí og #jöfnkjör, og fylgdu okkur á @kvennafri.
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.