- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Stjórnir Mannauðssjóða Kjalar og Samflots hafa samþykkt hækka hámark styrkja til sveitarfélaga og stofnanna þeirra vegna náms-og kynnisferða úr 130.000,- í 170.000.- pr. Starfsmanna. Jafnframt verður árum á milli slíkra verkefna fjölgað úr þremur í fjögur, þ.e. styrkir til náms-og kynnisferða verða veittir á fjögurra ára fresti. Þessi hækkun er afturvirk til 1. janúar 2023.
Þá vekja stjórnirnar athygli á að náms-og kynnisferðir eru ekki styrktar með einstaklingsstyrkjum heldur eingöngu með styrkjum úr Sveitarfélaga- og stofnanadeild gagnvart útlögðum kostnaði sveitarfélaga og stofnanna þeirra. Umsækjendur um styrk eru því alltaf sveitarfélögin sjálf eða stofnanir þeirra.
Jafnframt vilja stjórnir sjóðanna beina því til sveitarfélaga og stofnanna þeirra að gæta hófs og skipuleggja slík verkefni með eins hagkvæmum hætti og hægt er. Þá er því einnig beint til sömu aðila að taka þátt í því að kosta þessi verkefni og ekki varpa því sem upp á vantar í fjármögnun alfarið á almenna starfsmenn sína.
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.