- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Nú þurfum við hjá Kili á ykkar hjálp að halda. Við viljum biðja ykkur að taka þátt í stuttri skoðanakönnun um stöðu ykkar. Könnunin var send þeim félagsmönnum með skráð netfang og símanúmer. Jafnframt er könnunin aðgengileg öllum félagsmönnum á mínum síðum Kjalar.
Könnunin er á vegum Vörðu – Rannsóknarstofnunar vinnumarkaðarins, sem var stofnuð af ASÍ og BSRB árið 2020. Könnunin er mikilvægur liður í upplýsingaöflun um stöðuna á vinnumarkaði, sér í lagi varðandi fjárhagsstöðu, stöðu á húsnæðismarkaði, heilsu og áhrifa heimsfaraldursins. Niðurstöður hennar munu hjálpa okkur við að greina stöðu launafólks á Íslandi.
Það tekur aðeins um 10 mínútur að svara könnuninni. Spurt er um húsnæði, fjárhagsstöðu, líðan, heilsufar, heilbrigðisþjónustu, sumarfrístöku, áhrifa heimsfaraldursins í starfi sem og á einkalíf.
Framkvæmd könnunarinnar er alfarið í höndum Vörðu, sem sér um hönnun spurninga, uppsetningu, framkvæmd og mun sjá um úrvinnslu á niðurstöðum.
Við þökkum þér fyrir að hjálpa okkur í þessu verkefni og teljum að niðurstöðurnar komi til með að nýtast í að móta og styðja við kröfur verkalýðshreyfingarinnar.
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.