- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Um námskeiðið:
Vilt þú skýra sýn þína á árið sem framundan er? Hvað er mikilvægt fyrir þig og hvernig vilt þú nýta tímann þinn? Á námskeiðinu er ætlunin að skoða með hvaða hætti þátttakendur geta varðað leiðina fyrir árið 2022 þannig að það verði innihaldsríkt og gjöfult, uppfullt af ánægjulegum stundum og tækifærum sem hver og einn skapar sér. Undanfarin misseri hafa verið áskorun fyrir marga og mögulega haft áhrif á framtíðarplön. Skoðað verður með þátttakendum hvað þetta tímabil hefur kennt okkur t.a.m. með hvaða hætti við getum náð stjórn á aðstæðum í stað þess að láta stjórnast af þeim. Markmið er að í lok námskeiðs hafi þátttakendur skýra sýn á hvert þeir vilja stefna á árinu 2022 og hafi lagt vörður að leiðangri sínum í þar til gerða vinnubók. Notaðar verða m.a. aðferðir markþjálfunar með þátttakendum. Námskeiðið er kennt á ZOOM í tveimur hlutum með viku millibili. |
Kostnaður: enginn - Félagsmenn Kjalar sækja námskeiðið sér að kostnaðarlausu. |
Hvenær: 1. og 15. febrúar frá kl. 17:00-19:00 |
|
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.