Ný heimasíða starfsmatsins

Ný heimasíða fyrir starfsmatkerfi og niðurstöður starfsmats fyrir starfsmenn sveitarfélaga, hefur verið opnuð.

Starfsmat er:
aðferð til að leggja samræmt mat á ólík störf
aðferð til að gera forsendur launaákvarðana sýnilegri
aðferð til þess að gera rökin á bak við launaákvarðanir skýrari
leið til að ákvarða sömu laun fyrir sambærileg eða jafnverðmæt störf

Starfsmatskerfið er greiningartæki sem er notað til að meta með kerfisbundnum hætti þær kröfur sem störf gera til starfsmanna. Kerfið byggir á hlutlægum viðmiðum sem notuð eru til að bera saman störf í samræmi við þær kröfur sem í störfunum felast, óháð hæfni þeirra sem þau vinna.

Nánar hér