- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Umræðuefnin á þingi sem fram fer nú í vikunni í Genf eru fjölmörg. Yfirskrift þingsins er „fólk umfram gróða“ (e. people over profit). Á þinginu er farið yfir helstu stefnu- og baráttumál PSI á heimsvísu. Málefnin eru fjölmörg og meðal annars þess sem er rætt um einkavæðingin sem virðist tröllríða öllum opinberum stofnunum hvar sem er í heiminum.
Hugmyndir um einkavæðingu í opinbera geiranum, til dæmis í heilbrigðiskerfinu, vekja áhyggjur víðar en á Íslandi og eru eitt af umræðuefnum á heimsþingi Public Service International (PSI), alþjóðlegra heildarsamtaka opinberra starfsmanna, Þá er fjallað um baráttu einstakra þjóða, svo sem baráttu Filippseyinga fyrir viðurkenningu á réttindum starfsmanna og baráttu japanskra slökkviliðsmanna til að stofna stéttarfélög í skugga kjarnorkugeilsunar og jarðskjálfa.
Á þinginu er einnig fjallað um öryggi heilbrigðisstarfsmanna, hvort heldur sem er á Vesturlöndum eða í miðjum Ebólu faraldri í Líberíu, og baráttuna gegn skattaundanskotum stórfyrirtækja, sem er umfangsmikil og á alheimsvísu. Þá er einnig fjallað um mannréttindi, umhverfismál, innflytjendur og mikilvægt framlag þeirra til vinnumarkaðarins, flóttafólk og mögulega fjölgun þeirra í framtíðinni, nýjar áskoranir, framtíðarvinnumarkaðinn, tæknibreytingar og fjölmargt fleira.
Þá er sérstakur dagskráliður um áskorun um að binda enda á ofbeldi gegn konum. Horft til framtíðar og fortíðar Þingið sitja fulltrúar stéttarfélaga og bandalaga innan PSI frá 150 aðildarlöndum. Alheimsþingið er haldið á fimm ára fresti og þar eru teknar ákvarðanir um framkvæmdáætlanir næstu ára og litið bæði til fortíðar og framtíðar. Ályktanir þingsins eru fjölmargar og taka oft mikinn tíma í vinnslu þegar svo margar þjóðir koma að borðinu, en í þeim birtist meðal annars sameiginlegur skilningur okkar á stefnu PSI og framkvæmd hennar.
Framtíðin er okkar að móta Guy Ryder, forseti Alþjóðavinnumálastofnunarinnar (ILO), var gestur á þinginu og tók meðal annars þátt í umræðum um framtíðarvinnumarkaðinn. Þar bað hann fólk að varast að týnast í tölum og útreikningum um fjölda nýrra starfa í vangaveltum sínum um framtíðarvinnumarkaðinn. Þess í stað þurfi að einbeita sér að kröfunni um lýðræði framtíðarinnar, tryggja félagslega virkni og leysa úr verkefnum mikilla fólksflutninga.
Rosa Pavanelli, framkvæmdastjóri PSI, og fleiri töluðu á svipuðum nótum. Í máli hennar kom fram að í framtíðinni verði valdið fólgið í þekkingu á tækninni og það þyrfti að tryggja að það vald væri í réttum höndum. Ekki sé hægt að taka breytingum framtíðarinnar sem fórnarlömb heldur verið að taka þeim sem þátttakendur og höfundar. Framtíðin sé okkar að móta.
Kjölfesta - mars 2024
Fjallað er um starfsemi félagsins á liðnu ári ásamt því sem rætt er við félagsfólk í fjölbreyttum störfum.