Frestur til að sækja um verkfallsbætur rennur út miðvikudaginn 25. október nk.

Ellefu aðildarfélög BSRB og Samband íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning að morgni laugardags 10. júní 2023. Í framhaldinu var verkfallsaðgerðum sem hófust um miðjan maí aflýst. Í framhaldinu var útbúin sérstök síða þar sem félagsfólk sem lagði niður störf í aðgerðun á tímabilinu 15. maí - 10. júní getur sótt um verkfallsbætur. Meirihluti þeirra sem tóku þátt í verkfallsaðgerðunum hefur nú þegar sótt um verkfallsbætur. Frestur fyrir þau sem eiga eftir að sækja um bæturnar rennur út miðvikudaginn 25. október nk. Eftir það verður síðunni lokað. Stefnt er að því að greiðsla síðustu verkfallsbóta fari fram fyrstu dagana í nóvember.

Ferðatími á vegum vinnu telst vinnutími

Nú á dögunum komst Landsréttur að sömu niðurstöðu og Héraðsdómur Reykjavíkur hafði áður komist að í máli starfsmanns sem taldi að ferðatími á vegum vinnu sinnar, til annars áfangastaðar en hefðbundinnar starfsstöðvar í því skyni að inna af hendi störf sín að kröfu atvinnurekanda, eigi að teljast til vinnutíma.

Lokað á skrifstofum Kjalar á Akureyri og Ísafirði í dag

Skrifstofur Kjalar á Akureyri og Ísafirði eru lokaðar í dag vegna stjórnarfundar Kjalar. Skrifstofa Kjalar á Grundarfirði er opin og því er hægt að ná í okkur símleiðis og í gegnum tölvupóst milli 10:00-13:00 í dag. Sími Kjalar er 525-8383

Fjölbreytt námskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða - Haustönn 2023

Nú er tilvalið að skrá sig á námskeið hjá Fræðslumiðstöð Vestfjarða. Í haust má finna fjölbreytt úrval námskeiða sem standa félagsfólki Kjalar til boða, þeim að kostnaðarlausu. Kjölur stéttarfélag vill stuðla að fjölbreyttum námskeiðum fyrir félagsfólk í samstarfi við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar og eru þau námskeið félagsfólki að kostnaðarlausu. Námskeiðum þessum er ætlað að styrkja fólk í lífi og starfi með því að hlúa að heilsu og menningu.

Fjölbreytt námskeið hjá Símey - Haustönn 2023

Nú er tilvalið að skrá sig á námskeið hjá Símey. Í haust má finna fjölbreytt úrval námskeiða sem standa félagsfólki Kjalar til boða, þeim að kostnaðarlausu. Kjölur stéttarfélag vill stuðla að fjölbreyttum námskeiðum fyrir félagsfólk í samstarfi við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar og eru þau námskeið félagsfólki að kostnaðarlausu. Námskeiðum þessum er ætlað að styrkja fólk í lífi og starfi með því að hlúa að heilsu og menningu. Upplýsingar um fræðsludagskrá haustannar hjá Símey má sjá á heimasíðu skólans og heimasíðu Kjalar hér að neðan.

Fjölbreytt námskeið hjá Farskólanum - Haustönn 2023

Nú er tilvalið að skrá sig á námskeið hjá Farskólanum. Í haust má finna fjölbreytt úrval námskeiða sem standa félagsfólki Kjalar til boða, þeim að  kostnaðarlausu. Kjölur stéttarfélag vill stuðla að fjölbreyttum námskeiðum fyrir félagsfólk í samstarfi við fræðslu- og símenntunarmiðstöðvar og eru þau námskeið félagsfólki að kostnaðarlausu. Námskeiðum þessum er ætlað að styrkja fólk í lífi og starfi með því að hlúa að heilsu og menningu.  Upplýsingar um fræðsludagskrá haustannar hjá Farskólanum má sjá á heimasíðu skólans og heimasíðu Kjalar hér að neðan.

Ekki skylda að mæta til trúnaðarlæknis í veikindaforföllum

Við viljum vekja athygli á tveimur nýlegum dómum sem fallið hafa í tengslum við trúnaðarlækna vinnustaða og réttindi starfsfólks í veikindum. Á síðustu mánuðum hafa tveir dómar fallið hjá Félagsdómi annarsvegar og Landsdómi hinsvegar sem staðfesta þá afstöðu stéttarfélaga að starfsfólki beri að jafnaði ekki að mæta til skoðunar hjá trúnaðarlækni heldur ber trúnaðarlækni að ræða við lækni starfsmanns, þ.e. þann sem gefur út vottorð.

Ert þú á leið í nám? Kynntu þér styrki Fræðslusjóðs Kjalar

Fræðslusjóður Kjalar hefur það markmið að auka hæfni sjóðsfélaga og möguleika þeirra til starfsþróunar í starfi eða eftir atvikum að styrkja þá til sí- og endurmenntunar. Þannig geti sjóðsfélagar bætt við og/eða endurnýjað menntun sína og viðhaldið virði sínu á vinnumarkaði.

Áttu von á barni? Félagsfólk Kjalar getur sótt um fæðingarstyrk í gegnum Styrktarsjóð BSRB

Félagsfólk Kjalar sem hefur verið starfandi síðustu 6 mánuði fyrir fæðingu barns og hefur gildan ráðningarsamning við upphaf fæðingarorlofs á rétt á styrk. Við útreikning upphæðar er miðað við greidd iðgjöld í sjóðinn síðustu 12 mánuði, ef iðgjaldaupphæð nær 33.000 kr. Er styrkurinn 240.000 kr. Nái iðgjaldaupphæðin ekki þessu marki lækkar styrkurinn hlutfallslega miðað við inngreidd iðgjöld.

Framlengdur skráningarfrestur til 20. ágúst á tölvunámskeiðum í fjarnámi

Við viljum vekja athygli á framlengdum skráningarfresti til 20. ágúst fyrir fjölbreytt tölvunámskeið hjá Starfsmennt. Námskeiðin eru kennd í fjarnámi og er upphaf þeirra valfrjálst. Félagsfólk Kjalar getur sótt námskeiðin að kostnaðarlausu.