- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Hér á eftir er frétt af heimasíðu BSRB og er Kjölur stéttarfélag þátttakandi og snýr fréttin því að félagsmönnum Kjalar. Stjórn félagsins hefur ákveðið að fram fari atkvæðagreiðsla allra félagsmanna sem starfa hjá sveitarfélögum og þeirra ríkisstarfsmanna sem starfa hjá Heilbrigðisstofnun Norðurlands, en þar erum félagar í SLFÍ einnig að kjósa um verkfall.
Mjög mikilvægt er að félagsmenn taki þátt í atkvæðagreiðslunni þ.s. krafist er 50% þátttöku svo kosningin teljist lögmæt.
Atkvæðagreiðsla þeirra aðildarfélaga BSRB sem semja við ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg um verkfallsboðun mun fara fram dagana 17. til 19. febrúar. Samþykki félagsmenn verkfallsboðunina munu víðtækar aðgerðir allt að 18 þúsund opinberra starfsmanna hefjast 9. mars og standa þar til samningar hafa náðst.
Fjölbreyttir hópar starfsmanna hins opinbera munu taka þátt í verkfallsaðgerðunum, verði þær samþykktar í atkvæðagreiðslu, til dæmis starfsfólk á Landspítalanum og í annarri heilbrigðisþjónustu, í velferðarþjónustunni, skólum, leikskólum og frístundaheimilum. Einnig starfsmenn í sundlaugum og íþróttahúsum og starfsfólk sem sinnir þjónustu við aldraða og fólk með fötlun, svo einhver dæmi séu nefnd.
Boðaðar aðgerðir verða tvískiptar. Annars vegar verða verkföll hjá þorra félagsmanna hjá ríki, Sambandi íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg á ákveðnum dögum sem munu að óbreyttu lama stóran hluta almannaþjónustunnar þessa daga. Hins vegar verða ákveðnir hópar í ótímabundnu verkfalli frá og með 9. mars. Það verða meðal annars starfsmenn grunnskóla og frístundaheimila á nær öllu höfuðborgarsvæðinu auk Akraness, sem þýðir að frístundaheimilin verða lokuð frá 9. mars.
Ótímabundið allsherjarverkfall frá 15. apríl Samkvæmt þeirri áætlun sem félagsmenn munu nú greiða atkvæði um munu þessar aðgerðir halda áfram samkvæmt áætlun fram í dymbilviku. Ótímabundið allsherjarverkfall allra félagsmanna hjá ríki, Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg mun svo hefjast þann 15. apríl, takist samningar ekki fyrir þann tíma.
Alls munu félagar í 17 aðildarfélögum BSRB greiða atkvæði um verkfallsboðunina. Niðurstöðurnar verða kynntar fimmtudaginn 20. febrúar. Félögin hafa verið kjarasamningslaus frá 1. apríl 2019, eða í á ellefta mánuð. Kjarasamningsviðræður munu halda áfram samhliða undirbúningi verkfallsaðgerða. Félagsmenn í eftirtöldum félögum munu greiða atkvæði um verkfallsboðun:
Félag opinberra starfsmanna á Austurlandi
Félag opinberra starfsmanna á Vestfjörðum
FOSS, stéttarfélag í almannaþjónustu
Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
Landssamband slökkviliðs- og sjúkraflutningamanna
Sameyki – stéttarfélag í almannaþjónustu
Sjúkraliðafélag Íslands
Starfsmannafélag Dala- og Snæfellsnessýslu
Starfsmannafélag Fjallabyggðar
Starfsmannafélag Fjarðabyggðar
Starfsmannafélag Garðabæjar
Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
Starfsmannafélag Húsavíkur
Starfsmannafélag Kópavogs
Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
Starfsmannafélag Suðurnesja
Starfsmannafélag Vestmannaeyja
Þrjú félög til viðbótar; Landssamband lögreglumanna, Tollvarðafélag Íslands og Félag starfsmanna stjórnarráðsins, hafa lýst yfir stuðningi við aðgerðirnar, en félagsmenn þeirra hafa ekki verkfallsrétt og munu félögin því ekki boða til sambærilegra aðgerða. Þá styðja fangaverðir, sem eru í Sameyki en hafa ekki verkfallsrétt, aðgerðirnar þó þeir verði að standa utan við þær.
Nærri 90 prósent vilja aðgerðir Mikill hugur er í félagsmönnum eins og sést í könnun sem Sameyki hefur látið gera hjá sínu fólki. Könnunin leiddi í ljós að nærri níu af hverjum tíu félagsmönnum styðja boðun verkfalls til að þrýsta á um gerð kjarasamninga. Atkvæðagreiðslur verða á hendi aðildarfélaga BSRB sem munu birta sínum félagsmönnum nánari upplýsingar um framkvæmd atkvæðagreiðslu, fyrirhugaðar verkfallsaðgerðir og greiðslur til þeirra sem fara í verkfall.