- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Markmið sjóðsins er að auka hæfni sjóðsfélaga og möguleika þeirra til starfsþróunar í starfi eða eftir atvikum að styrkja þá til sí- og endurmenntunar. Þannig geti sjóðsfélagar bætt við og eða endurnýjað menntun sína og viðhaldið virði sínu á vinnumarkaði.
Í sjóðinn er því hægt að sækja styrki vegna:
Frá og með 1. janúar 2023 voru innleiddar nýjar reglur fyrir fræðslusjóð. Hámarsstyrkur á 12 mánaða tímabili er nú 150.000 kr. En fyrir átti félagsfólk 140.000 styrk á 24 mánaða tímabili. Endilega kynnið ykkur nýjar reglur hér
Með umsókn skal skila reikningi sem er á nafni félagsmanns þar sem fram kemur nám/námskeiðslýsing, nafn og kennitala fræðsluaðila. Ef ekki kemur fram staðfesting á greiðslu á reikningi þarf að skila til viðbótar staðfestingu á greiðslu, t.d. úr heimabanka eða greiðslukvittun frá viðkomandi skóla/fyrirtæki. Reikningur má ekki vera eldri en 12 mánaða.