Kjarasamningur við Samband íslenskra sveitarfélaga samþykktur

Atkvæðagreiðsla um kjarasamning milli Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu og Samband íslenskra sveitarfélaga lauk kl. 09:00 í morgun, 25. júní.

Kjarasamningurinn er með gildistíma frá 1. apríl 2024 – 31. mars 2028.

Fjöldi á kjörskrá voru 1.295. Greidd atkvæði voru 554 eða 43%. 500 voru samþykkir, eða 90%. Alls 6,86% höfnuðu samningnum og 3% tóku ekki afstöðu. 

Sam­kvæmt hinum nýja samningi munu mánaðar­laun hækka um að lág­marki 23.750 krónur eða 3,25% og desem­ber­uppbæltur og orlofsuppbætur hækka í takt við samninginn.