Samkvæmt hinum nýja samningi munu mánaðarlaun hækka um að lágmarki 35.000 krónur og desemberuppbót á árinu 2023 verður 131.000 krónur. Þá náðist einnig samkomulag um sáttagreiðslu að upphæð 105.000 krónum auk þess sem samið var um hækkun á lægstu launum og viðbótargreiðslur fyrir tiltekin starfsheiti.
Samningurinn var einnig samþykktur með miklum meirihluta hjá félagsfólki hinna aðildarfélaga BSRB.
„Niðurstaðan er afgerandi og endurspeglar að félagsfólk er hóflega sátt með þennan samning. Það er óþolandi að það hafi þurft svo umfangsmiklar aðgerðir til að ná fram réttlátum og sanngjörnum kröfum þeirra. Verkföllin skiluðu þó meira en kjarabótum því þau sýndu sveitarfélögunum svart á hvítu hversu ómissandi starfsfólk þeirra er,“ er haft eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttur formanni BSRB.
„Með þessum kjarasamningum var tekið skref í rétta átt til að launin endurspegli raunverulegt verðmæti þeirra starfa – en baráttan heldur áfram og við höfum þegar hafið undirbúning fyrir gerð næstu kjarasamninga.“