- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Kjölur er stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu sem varð til við sameiningu Félags opinberra starfsmanna í Húnavatnssýslum, Starfsmannafélags Akureyrarbæjar, Starfsmannafélags Borgarbyggðar, Starfsmannafélags Dalvíkurbyggðar og Starfsmannafélags Siglufjarðarkaupstaðar, á fundi í Munaðarnesi 15. maí 2004. Þann 17. febrúar 2014 var samþykkt á aðalfundi Starfsmannafélags Skagafjarðar að sameinast Kili stéttarfélagi og tók sameiningin strax gildi. KJÖLUR stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu er aðildarfélag BSRB.
Tilgangur félagsins er að vera í forsvari fyrir einstaklinga við gerð kjarasamninga og vinna að öðrum hagsmunamálum, vernda réttindi félaganna og beita sér gegn hvers konar misrétti í launagreiðslum og starfskjörum. Félagsmenn eru um 975. Konur eru 70% félagsmanna.
Félagið skiptist í tvo hluta, opinberan hluta og almennan hluta.
Til opinbera hlutans teljast: Félagsmenn í þjónustu ríkisins og sveitarfélögum sem ekki eiga aðild að öðru stéttarfélag Félagsmenn í vinnu hjá sjálfseignarstofnunum sem starfa í almannaþágu samkvæmt lögum.
Til almenna hlutans teljast: Félagsmenn sem vinna hjá fyrirtækjum sem starfa í almannaþágu og voru áður stofnanir sveitarfélaga.
Samkvæmt lögum Kjalar verða þeir sem taka laun eftir kjarasamningi þess sjálfkrafa félagsmenn og greiða gjald til þess sem er 1% af öllum launum. Ef viðkomandi vill ekki vera í félaginu getur hann sagt sig úr því, en þarf eftir sem áður að greiða gjald til þess samkvæmt lögum um kjarasamninga opinberra starfsmanna.
Félagsmaður Kjalar stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónustu, hefur m.a. eftirfarandi réttindi með veru sinni í félaginu:
haft áhrif á umhverfi þitt með að taka þátt í félagsstarfinu
tekið þátt í námskeiðahaldi á vegum félagsins,
komið með ábendingar um starfsemi félagsins til stjórnar félagsins
nýtur kjarasamninga félagsins nýtur stofnanasamnings sem gerður er á viðkomandi stofnun (ríkið)
nýtur veikindaréttar og fæðingarorlofs
á rétt á úthlutun úr styrktarsjóði í fæðingarorlofi
á rétt á að kjósa trúnaðarmann og stjórn
á rétt á að dvelja í orlofshúsum félagsins
á rétt á að taka þátt í því félagsstarfi sem boðið er upp á
á rétt á úthlutun ú fræðslusjóði Kjalar
á rétt á úthlutun úr styrktarsjóði BSRB
á rétt á starfsnámi á vegum samningsaðila
á sér málsvara í réttinda- og álitamálum
vinnur sér inn réttindi hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins eða Söfnunarsjóði lífeyrisréttinda eða Lífeyrissjóði starfsmanna sveitarfélaga
á rétt á framlagi frá atvinnurekanda leggi hann til viðbótarframlag í séreignarlífeyrissjóð
Svo er alltaf heitt kaffi á könnunni ef þú á leið framhjá skrifstofu okkar!