- Kjarasamningar
- Styrkir
- Orlofsmál
- Um Kjöl
Núverandi kjörtímabil stjórnar Kjalar er að renna sitt skeið og því er auglýst eftir tilnefningum vegna kjörs í trúnaðarstöður félagsins fyrir tímabilið 2020 til 2023, en kosning mun fara fram á aðalfundi félagsins hinn 19. mars nk.
Í 6. gr. laga félagsins segir:
“Stjórn félagsins skal skipuð níu félagsmönnum, formanni og sex meðstjórnendum, auk tveggja til vara. Stjórnarmenn skulu kosnir til þriggja ára í senn. Formann skal kjósa sérstaklega. Stjórnin kýs úr sínum hópi varaformann, ritara og gjaldkera.
Trúnaðarmannaráð gerir tillögu um stjórnarmenn úr sínum röðum eða úr röðum almennra félagsmanna. Félagsmenn geta gert tillögu um stjórnarmenn og verða að minnsta kosti 25 félagsmenn að standa að tillögu félagsmanna um hvern stjórnarmann. Tillögum skal fylgja nafn, kennitala, starfsheiti, heimilisfang og heiti vinnustaðar þeirra sem tillaga er gerð um. Tillögum skal fylgja skriflegt samþykki þeirra sem tillaga er gerð um en að öðrum kosti telst tillaga um hann ógild.”
Allar tillögur skulu vera skriflegar og berast stjórn félagsins í síðasta lagi kl. 12:00 þann 27. febrúar nk.
Akureyri, 12. febrúar 2020
Kjörstjórn KJALAR stéttarfélags starfsmanna í almannaþjónusta