Nýr kjarasamningur við sveitarfélögin undirritaður

Nýr kjarasamningur undirritaður
Nýr kjarasamningur undirritaður

 

Samninganefndir 11 aðildarfélaga BSRB og Sambands íslenskra sveitarfélaga undirrituðu nýjan kjarasamning á öðrum tímanum í nótt. Gildistími samningsins er frá 1. apríl 2024 til 31. mars 2028. Samið var sambærilegum nótum og á almennum markaði í vor.

 

Félögin sem kjarasamningurinn nær til eru:

  • Kjölur – stéttarfélag starfsmanna í almannaþjónustu
  • Félag opinbera starfsmanna á Austurlandi
  • FOSS - stéttarfélag í almannaþjónustu
  • Sameyki - stéttarfélag í almannaþjónustu
  • Starfsmannafélag Garðabæjar
  • Starfsmannafélag Húsavíkur
  • Starfsmannafélag Hafnarfjarðar
  • Starfsmannafélag Mosfellsbæjar
  • Starfsmannafélag Kópavogs
  • Starfsmannafélag Suðurnesja
  • Starfsmannafélag Vestmannaeyjabæjar

 

Nýr kjarasamningur verður kynntur félagsfólki viðkomandi félaga á næstu dögum.

Nú þegar fyrstu kjarasamningar á opinberum markaði hafa verið undirritaðir standa vonir til að lokið verði við gerð fleiri kjarasamninga á næstu dögum. Kjarasamningar hjá meginþorra félagsfólks aðildarfélaga BSRB hafa verið lausir frá 1. apríl 2024.